indexer

Þessi hluti appsins tekur við myndum og JSON-lýsingum og matar þær í valda gervigreind.

Athugið: Vinnslan fer fram í bakgrunninum. Það er eðlilegt að appið virki stirt eða frjósi tímabundið á meðan, en vinnslan heldur áfram þótt svo virðist sem appið svari ekki.

Model selector

Hér er hægt að velja á milli mismunandi gervigreindarlíkana. Ég valdi Multilingual CLIP ViT-B/32 þar sem það skilur íslensku (að vissu marki) og er tiltölulega létt líkan.

Neðsta líkanið er betra, þar sem það er tvöfalt stærra, en það tekur líka tvöfalt lengri tíma að greina (indexa) myndir.

supabase

Hér getur þú tengt þinn eigin gagnagrunn og stjórnað honum. Hér er einnig hægt að tæma gagnagrunninn (eyða öllum gögnum).